Aðventustund sunnudaginn 6. desember 2015, kl. 15 í Skaftfellingabúð
Aðventustundin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár.
Söngfélagið syngur jólalög, bornar verða fram glæsilegar kaffiveitingar, gengið í kringum jólatré með sveinum, sprelli og söng. Aðgangseyrir kr. 1500 fyrir fullorðna.
Written on .
Öræfaball ~ 21. nóvember
Fimm ár eru síðan Öræfingar hóuðu í fyrrum sumardvalarbörn og héldu samkomu í Skaftfellingabúð. Nú á að endurtaka leikinn með kvöldskemmtun laugardaginn 21. nóvember. Myndasýning verður á tjald, Steinunn Björg og Jónína Ara syngur nokkur lög, Einar Jónsson spilar á píanóið og Stefán Bjarnason verður með nikkuna. Að sjálfsögðu verður hópsöngur og sitthvað fleirra. Síðan mun Hornfirðingurinn Grétar Örvarsson leika fyrir dansi.
Aðalatriðið er að hitta mann og annan, taka lagið og tjútta smávegis.
Written on .
Spilakvöld 12. nóv
Fimmtudag 12. nóv. kl. 20:00 verður þriðja spilakvöldið hjá Rangæingafélaginu í Skaftfellingabúð í samvinnu við Skaftfellingafélagið. Og þá er eitt kvöld eftir 26. nóv. Spilakvöldin eru undir stjórn Gunnars Guðmundssonar og Sigurjónu Björgvinsdóttur Rangæinga. Verðlaun verða veitt fyrir hvert kvöld og svo heildarverðlaun í lokin, en það er helgardvöl í orlofshúsi Rangæingafélagsins. Aðgangseyrir er kr. 1000, innifalið kaffi og meðlæti.
Written on .
Myndakvöld ~ 5. nóvember
Fimmtudaginn 5. nóvember, kl. 20 í Skaftfellingabúð sýnir Arnar Bjarnason frá Þykkvabæ í Landbroti myndir frá gönguferð úr sæluhúsinu við Blæng á Austursíðuafrétti yfir í Núpsstaðarskóga.
Aðgangseyrir 1000 kr. – Innifalið er kaffi og kruðerí.
Written on .
Spilakvöld
Eins og tíðkast hefur síðustu ár, stendur Rangæingafélagið fyrir spilakvöldum í Skaftfellingabúð í samvinnu við Skaftfellingafélagið. Framundan eru fjögur fimmtudagsspilakvöld undir stjórn Gunnars Guðmundssonar og Sigurjónu Björgvinsdóttur Rangæinga. Verðlaun verða veitt fyrir hvert kvöld og svo heildarverðlaun í lokin, en það er helgardvöl í orlofshúsi Rangæingafélagsins. Aðgangseyrir er kr. 1000, innifalið kaffi og meðlæti. Spilakvöld verða sem hér segir: 15. og 29. október, 12. og 26. nóvember – kl. 20:00.
Sem sagt, fyrstu spil eru 15. október.
Written on .
Fýlaveisla
Hin árlega og ómissandi fýlaveisla verður í Skaftfellingabúð fyrsta vetrardag, laugardaginn 24. október 2015 og hefst með borðhaldi kl. 20. Húsið verður opnað upp úr kl. 19.
Aðgangur kr. 6.500
Að venju verður borinn fram saltaður fýll úr Mýrdalnum,
veiddur af Tryggva Ástþórssyni o.fl. og verkaður undir vökulum augum Málfríðar Eggertsdóttur. Þá verður boðið upp á hangikjöt og meðlæti, flatkökur frá Mörk, rófur frá Þórisholti og kartöflur frá Seljavöllum.
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi og auk þess verða leikin létt lög af plötum