Skip to main content

Þorrablót 2011

Að vanda tókst þorrablót Skaftfellingafélagsins með miklum ágætum. Um 130 manns sátu að þorrakræsingum Nóatúns og að því búnu fóru þeir á kostum félagarnir og stórsöngvararnir Davíð Ólafsson og Stefán Helgi Stefánsson í Dúett. Dansinn dunaði svo langt fram á nóttina undir dillandi dansmúsík Bjarna Arasonar og Grétars Örvarssonar. 
thorri-2011.jpg
 
Myndir eru komnar inn á myndasafnið.

Þorrablót

Þorrablót Skaftfellingafélagsins verður haldið í Skaftfellingabúð laugardaginn 22. janúar 2011 og hefst með borðhaldi kl. 20 Húsið verður opnað kl. 19
Veislustjórn og skemmtidagskrá annast Dúett, söngvararnir og fjörkálfarnir Stefán Helgi Stefánsson og Davíð Ólafsson Undirleikari Helgi Hannesson.
Um dansmúsíkina sjá Grétar Örvarsson og Bjarni Arason
Glæsilegt þorrahlaðborð auk lambapottréttar
Við miðapöntunum taka
Hákon (821 2115), Helgi (899 4818) og Svavar (856 9670)
og skaft(hjá)skaft.is til og með 19. janúar
Aðgangur kr. 5.000
Eftir borðhald kl. 11:00 kr. 1.000 
 
img_5323a.jpg

Aðventustund des. 2010

Fjölsótt og vel lukkuð aðventustund Skaftfellingafélagsins

Aðventustund Skaftfellingafélagsins var haldin í Skaftfellingabúð sunnudaginn 12. desember. Sú hefð hefur skapast til nokkurra ára að sameina aðventustund og jólatrésskemmtun og hefur samkoman verið afar vel sótt. Formaðurinn, Skúli Oddsson bauð gesti velkomna, Söngfélagið söng nokkur jólalög undir stjórn Vignis Friðriks Stefánssonar og að því búnu var fólki boðið til kaffiveislu og krása af dýrindis veisluborði Ingu Jónu og söngfélaganna. Sr. Sveinn Valgeirsson prestur á Eyrabakka sem er frá Reyni í Mýrdal fór með nokkur orð í tilefni aðvetnunnar. Þá var loksins komið að jólaballinu sjálfu. Drógu þeir upp nikkur sínar snilldarspilararnir Kristinn Kjartansson og Stefán Bjarnason auk Friðriks á píanóinu og börn og fullorðnir sungu með þeim við jólatréð. Síðan komu hvellandi og skellandi jólasveinar sem runnu á hljóðið og börðu upp á. Karlar þessir viðhöfðu ýmsa skrítna siði ofan úr fjöllum auk þess sem þeir sungu af mikilli raust og ætluðu ekki að fást til að fara, eða kannski ekki þorað heim til móður sinnar.
 
Myndir eru komnar inn á myndasafnið. 
 
Síðan er dagskráin að mótast fyrir þorrablótið sem verður 22. janúar.  Tvíeykið í Dúett, Davíð Ólafsson og Stefán Helgi Stefánsson ásamt undirleika verð með söng og sprell með matnum.  Síðan mun Hornfirðingurinn Grétar Örvarsson spila fyrir dansi ásamt látúnsbarkanum Bjarna Arasyni. 
 

Aðventustund

Skaftfellingafélagið og Söngfélagið standa fyrir aðventustund 
sunnudaginn 12. desember 2010
kl. 15:00 í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178.
Söngfélagið syngur nokkur jólalög, bornar verða fram kaffiveitingar og gengið í kringum jólatré.  Síðan mun Sr. Sveinn og jólasveinar kíkja á svæðið og segja nokkur orð.
Aðgangseyrir kr. 1000 fyrir 16 ára og eldri.

Vel lukkað hagyrðingamót

Sjaldan hefur verið hlegið hærra og meira í Skaftfellingabúð en kvöldið 18. nóvember þegar  fimm hagyrðingar fóru þar með sinn hnyttna kveðskap. Þetta voru Vestur-Skaftfellingarnir Heiða Guðný Ásgeirsdóttir á Ljótarstöðum og Reynir Ragnarsson í Vík og Austur-Skaftfellingarnir Halldór Þorsteinsson frá Svínafelli og Torfhildur Torfadóttir á Gerði. Ómar Ragnarsson sem einnig á rætur að rekja í Skaftafellssýslur stjórnaði hópnum og lagði fram drjúgan skerf af skemmtiefni. 
Skáldin kynntu sig í bundnu máli og brugðu líka upp myndum af hinum þátttakendunum, rifjuðu upp gömul kynni og reyndu að stofna til nýrra.  Halldór var að hitta Heiðu í fyrsta skipti þennan dag og fékk mikið klapp í salnum er hann orti svo til hennar: 
Heiða, lítt um hagi þína
háttalag og siði veit.
Inn í líf þitt reyni að rýna,
ég reyndar veit þú býrð í sveit. 

Heiða, þú ert laus og liðug,
líkt er ástatt fyrir mér.
Ég á hugmynd, hún er sniðug
að heim á óðal fylgi þér.

„Nú, þetta ætlar að hafa afleiðingar,“ sagði stjórnandinn Ómar og tók eitt af sínum frægu bakföllum. 

Tolla orti til Halldórs:

Sjáið vinir segginn þann
sem mitt hlýtur lofið.
Hjá skáldgyðjunni hefur hann
held ég alltaf sofið.

Meðal yrkisefna voru Skaftafellssýslurnar og munurinn á þeirri eystri og vestri og íbúum þeirra. Heiða rakti muninn aftur til sköpunarinnar og taldi almættið hafa komið úr vestri og haldið til austurs eins og þurrkinn.

Fullkomið hreint allt hjá honum
frá hæstu fjöllum í djúp
svo var göslið algert á onum
austan við Lómagnúp.

Reynir setti alla sýslubúa undir einn hatt er hann orti: 

Skýrt er sagt um Skaftfellinga
þeir skoði vel sitt orðaval
til loforða ei létt að þvinga
en lofi þeir – það standa skal.

Eftir um tveggja tíma frábæra dagskrá með góðu kaffihléi tóku Kristinn Kjartansson og Stefán Bjarnason upp dragspilin og fylltu salinn ljúfum tónum meðan gestir bættu á sig kökum og aðrir kíktu á barinn.  
Myndir eru komnar inn á myndasafnið. 
img_3654b.jpg 
img_3655b.jpg

Myndakvöld

Fimmtudagskvöldið 25. nóvember kl. 20 í Skaftfellingabúð.
Fyrst verða sýndar myndir frá Kjartani Guðmundssyni (1885-1950) ljósmyndara frá Hörgsholti Hrunamannahreppi sem bjó í Vík frá 1915-1920 og tók mikið af myndum af fólki þar og í nágrenninu auk þess sem hann ferðast um sýsluna og kom einu sinni í Öræfin haustið 1917.
Þá verða sýndar myndir úr Vík m.a. frá því þegar braggahverfi voru þar.
Að lokum verða sýndir myndir frá Vilhjálmi Eyjólfssyni á Hnausum í Meðallandi. Myndir hans eru frá ýmsum tímum, en hann var og er fréttaritari Morgunsblaðsins.
Aðgangur ókeypis. Seldar verða léttar veitingar.