Skip to main content

Söngstarfið hefst

skaft-kor-c.jpg
 
Söngfélag Skaftfellinga mun hefja söngstarfið þriðjudagskvöldið 13. september kl. 20:00 í Skaftfellingabúð, Laugarvegi 178, 4. hæð. Æfingar verða á þriðjudagskvöldum í vetur. Stjórnandi er Friðrik Vignir Stefánsson.
Nýir félagar eru velkomnir í allar raddir. Opið hús er á þriðjudagskvöldum og er söngfólk hvatt til að koma í heimsókn, fá sér kaffisopa og kynna sér starfsemi Söngfeágsins. Nýir félagar greiða ekki félagsgjald fyrsta misserið.
Söngfélag Skaftfellinga er blandaður fjórradda kór og eru söngfélagar ættaðir víðsvegar að af landinu, þó langflestir úr Skaftafellssýslum. Fjöldi söngfélaga er u.þ.b. 40. Nú er tækifæri fyrir áhugasama að stemma rödd við lag í góðum félagsskap á komandi vetri. Upplýsingar gefur Stjórn Söngfélags Skaftfellinga:
Guðlaugur Jón Ólafsson s: 861 9615
Kolbrún Einarsdóttir s: 618 8761/824 5521
Steinunn Helga Lárusdóttir s: 690 3449
Sveinn Hjörtur Hjartarson s: 824 2309
Unnur S. Alfreðsdóttir s: 848 1533